Jæja, þá er maður aðeins búin að laga þessa
síðu. Skipti um útlit, lagaði
linka, ég tók út þá sem ekki hafa
bloggað lengi, eða hafa ekki
skrifað á barnalandssíðurnar lengi.
Ég líka lagaði í upplýsingum
um mig, setti fullt þar inn, líka
aukahluti neðst, fullt af ónothæfum
upplýsingum um mig 
Myndirnar á síðunni eru ekki að
virka hérna hjá mér
þannig ég verð að setja þetta dót
inn seinna.
Annars er lítið að segja nema að ég fór í mitt
fyrsta samræmda stúdentspróf í dag. Fór í
enskuprófið í morgun og ég held
bara að það hafi gengið helvíti vel
Þetta var
bara svo langt
það voru svona.. 7 bls af
ólesnum texta. Eitthvað svoleiðiss allavega,
hlustun, málfræði og 2
ritgerðarspurningar.
Ég á eftir að fara í eðlisfræðipróf,
líffræðipróf og efnafræðipróf.
Gaman að þessu
Mér leiðast próftímar.
Anna á afmæli í dag, Til
hamingju.
Litli frændi hann
Bjarni átti afmæli í gær.. til
hamingju.
þótt hvorugt þeirra lesi bloggið mitt, en hvað um það.
Ég fór með Lindu sætu á
kaffihús áðan, hún er svo mikil
rúsina
*sorry* tíhíh
það fattaði þetta
enginn nema hún 
Ég var geðveikt dugleg í dag, tók til í
eldhúsinu, braut saman
þvottinn, ryksugaði,
vaskaði upp og
tók til inni hjá
mér í dag. 
Annars ætla ég að bara.. leika mér meira í tölvunni
BÆ :*
ps; voulez-vous coucher avec moi ce soir ?